Já, það eru kannski ekki allir
sem hafa heyrt af því, en FH-ingarnir (íslandsmeistararnir),
beittu bola brögðum við að leggja okkur af velli.
Þeir skiptu of mörgum leikmönnum inn á, heldur en reglur KSÍ
hveða á um. Sumum finnst þetta kannski ekki vera neitt stór mál, en
þá segi ég til hvers að hafa reglur ef ekki á að fara eftir þeim.
KSÍ er reglugerða batterí og framfylgir allskonar reglum, t.d
varðandi breidd valla og lengd, aðbúnað dómara og
leikheimildar fyrir leikmenn og fjölda erlendra leikmanna. Allt
gott og blessað.
Því segi ég að við eigum ekki að hika við að kæra
framkvæmd leiksinns. Ef við gerum það ekki, hvernig lítum við út ef
álíka atvik koma upp seinna á mótinu.
Ég er sannfærður um að ef um svipað atvik hefði verið að
ræða um í leik KR - ÍA, þá hefði allt verið vitlaust.
Ég ber mikla virðingu fyrir FH, og ætla þeim ekki að hafa
gert þetta viljandi. En ég geri þá kröfu
til Íslandsmeistaranna að þeir leiki eftir settum reglum.
Ég hef fylgst með liði Víkings Ó síðan við vorum í grútuðustu 4.
deild að berjast við Drang og skautafélagið (með fullri virðingu).
Og ég vænti þess að þegar við mætum topp atvinnumanna klúbbi
eins og FH að kröfurnar fari eftir því. Ef FH-ingum
finnst þetta vera léttvægt, þá eru þeir að líta niður á okkur, og
mér líkar það alls ekki.
Kærum þetta, strax...
Lifið heil.